þriðjudagur, janúar 13, 2009

presenting the fabulous

jæja þá er ég enn einu sinni árinu eldri, samkvæmt facebook allavega, fæddist reyndar klukkan 03:02 svo það eru næstumþvi þrír tímar í að ég þurfi að viðurkenna það að vera orðin 21
annars gekk heimspekin bara vonum framar og ég er í óðaönn að reyna að undirbúa mig fyrir landafræði, brjálað að gera!
því verður þetta blogg ekki lengra að sinni, það hefur bara verið hefð að blogga á afmælisdaginn!

rosalega væri ég til í einn svona í tilefni afmælisins (og lögdrykkjualdurs í USA)
love
Hulda Rún (gamla)

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

djöfull ertu óóóógeðslega gömul maður! haha
til hamingju með afmælið (í þriðja skiptið). þú ert alltaf jafn elskuleg. hlakka til að hitta þig á morgun og sjá allar hrukkurnar. (ég hef enn 12 daga til þess að njóta þess að vera ung og fersk)

kveðja,
Anna Haff

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með 21 árs afmælið í dag, kæra Hulda!

Ef þú lítur við á blogginu mínu sérðu að ég vistaði færslu í nótt, akkurat þegar þú varðst 21 árs. Ég var ekki búin að pæla í þessu fyrr en Ragnhildur benti mér á þetta, en ég gerði þetta ómeðvitað - við hljótum bara að vera eitthvað tengdar, er það ekki? Haha.
Þannig að hér með er færslan sem ég skrifaði í nótt tileinkuð þér og þínu 21 ári.

Kveðja,
Erla

Nafnlaus sagði...

Haha vó ég ætlaði að byrja kommentið mitt alveg eins og Anna...En til hamingju með afmælið gullið mitt og svo skulum við fá okkur cosmo þegar þið stúlkur eruð búnar í prófum! Hlakka mikið til:)

Kv. Sandra

Júlía sagði...

Vei, til hamingju aftur, Hulda.
Aldur er skrítið fyrirbæri, einn daginn hækkar hann um einn og þá má maður gera aðeins meira heldur en í gær.

Þetta er merkilegur áfangi í lífinu.
Annað sem er merkilegt er að við erum með eins bakgrunn á blogginu nema hvað að þitt er með lagi og skemmtilegri vogue mynd.

Til að bæta þetta komment aðeins ætla ég að segja aftur, Til hamingju með afmælið.

Unknown sagði...

heyrðu Hulda Rún það þýðir ekkert að hætta að blogga þó svo að þú sért svona svakalega gömul!