miðvikudagur, september 09, 2009

the show must go on

já enn eina ferðina hef ég ákveðið að kveikja líf í fríðu gömlu og reyna að blogga smá, það er kannski loksins ástæða til þess þar sem ég hitti vini mína ekki daglega og hef þá ef til vill eitthvað að segja.
annars er ýmislegt í fréttum, ég er bara að vinna á amour þessa dagana og safna pening þar sem að eftir aðeins 82 daga mun ferðalagið ógurlega hefjast. En fyrir þá sem ekki vita, sem eru eflaust fáir þá eru ég og Anna Guðrún að fara í bakpokaferðalag um suður Ameríku og er undirbúningur nú þegar hafinn, ég er búin að fara í bólusetningu og við erum búnar að fjárfesta í flugi sem var svo sannarlega ekki ódýrt, þökk sé ömurlegu gengi krónunnar.
Við fljúgum sem sagt frá Keflavík til Boston og svo frá Boston til Líma í Perú, við ætlum að byrja á að skoða Matchu Piccu incatrailið í Perú, og stefni ég því á að reyna að labba upp á súlur á næstunni svo ég detti ekki niður dauð á fyrsta degi.
Ferðinni er svo heitið til Chile-Arentínu-Paragvæ-Brasilíu-kannski Kólumbíu og svo ef peningar leyfa upp panamaskurðinn alveg að MExíkó og fljúga svo þaðan til New York og þaðan heim aftur.
Já þetta hljómar verulega spennandi en málið er bara að líf mitt í dag gæti ekki verið minna spennandi, það er enginn eftir á Akureyri þetta er orðinn hálfgerður draugabær og ég á mér ekkert líf sem er einmitt ástæðan fyrir því að ég er farin að blogga aftur eftir góða 8 mánaða pásu.
Líkt og glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir er líka kominn nýr playlisti og er þetta svo kallaður nostalgíu playlisti með fullt af lögum sem ég eitt sinn elskaði (og geri enn)
ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni, ætla að fara að gera eitthvað ýkt spennandi hérna á eyrinni, get t.d. skellt mér í keilu, nei bíddu ég á enga vini og ég er ömurleg í keilu! helvítis Akureyri!
en ég er hætt að væla styttist í að Linda komi norður í heimsókn og svo eru bara 9 dagar þangar til að ég fer suður! :)<--(broskall)
hiphopalula...
Hulda Rún

það styttist

4 ummæli:

Lilja sagði...

82 dagar eru sko ekki lengi að líða! er búin að vera hérna í dk í mánuð og mér finnst ég vera búin að vera í viku!
en vá hvað þetta ferðalag á eftir að vera gaman hjá ykkur! öfund!

sjáumst einhvertíman Hulda mín (örugglega á jubbileringunni(vá langt þangað til))

p.s. ég anna og þórdís erum svo búin að kveikja lífi í okkar gömlu síðu, mikluflottarienthu svo þú hefur eitthvað að gera í vinnunni ;)

fridafraenka sagði...

nei við verðum komnar út áður en við vitum af :)
en guð ég trúi ekki að ég sé ekki að fara að sjá þig fyrren á júbileringunni elskan! það er hræðilegt, en guð hvað það verður gaman þá!
mér lýst svo vel á það verðið að vera duglegar að blogga svo maður viti hvað er að gerast hjá ykkur! :)

Nafnlaus sagði...

ég hlakka svo til að fá ykkur í heimsóóóókn!! guð hvað við munum hafa mikið að tala um haha :)

kv.
Anna Haff

Nafnlaus sagði...

elskannn..
vonandi ertu að eiga time of your life.
oft sakna ég þín krullubína.
ástástást..
og hei. ég kveikti líka í mínu gamla bloggi.. blogg eru svooooo 200010