sunnudagur, nóvember 19, 2006

þegar eg verð stor...

...ætla ég að búa í stóru húsi með breiðum stiga og breiðu og fallegu stigahandriði

...ætla ég að eiga mann sem verður myndarlegri með aldrinum líkt og patrick dempsey

...ætla ég að búa utanlands í einhvern tíma

...ætla ég að eiga 2 falleg þæg og snyrtileg börn

...ætla ég að hitta stelpurnar einu sinni í viku á kaffihúsi til að slúðra

...ætla ég að borða svínahamborgarahrygg á jólunum

...ætla ég að halda góðu sambandi við systur mínar

...ætla ég að kaupa mér e-ð fallegt einu sinni í viku

...ætla ég að elska vinnuna mína

...ætla ég að eiga innikött

...ætla ég að halda áfram að vera óraunsæ draumóra manneskja!
...hulda rún

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þetta eru markmið í lagi! þetta er svipað hjá mér nema ég ætla ekki að eiga kött og ég ætla bara að eiga eitt barn...jeee

Nafnlaus sagði...

góð framtíð, góð framtíð

Nafnlaus sagði...

ofboðslega sem hann patrick dempsey er myndarlegur. ég held ég fari að horfa á greys í staðinn fyrir að læra fyrir munnlegt próf í þýsku

Nafnlaus sagði...

eitt barn? og tvö börn?
tsss, ég verð bara fyrir vonbrigðum.... ég stefni á 5 (bara svo að ég þurfi að eiga svona mini-rútu)

NEI DJÓK!! ÉG ÆTLA EKKI AÐ EIGA BÖRN!!!!!