annars átti ég bara ágætis tveggja daga frí sem er því miður að enda i dag! alltaf jafn leiðinlegt þegar fríin enda því að þá er svo langt í næsta frí. En svona er þetta víst, lífið er ekki alltaf dans á rósum!
en já þetta frí var allavega ekki af verri endanum, var bara eitthvað að hanga með möggu magg og öddu té elduðum saman í gær dýrindis jóa fél pizzu og linda kom svo og borðaði með okkur eftir langan vinnudag.
í dag fórum við svo í road trip útí laufás að heimsækja lindu, fórum með nesti svo það var bara kósý lautarferð og linda gaf okkur kakó og svona. Brunuðum svo í bæinn og sóttum sundföt og skelltum okkur í sund á svalbó, það klikkar aldrei!
í kvöld skellti ég mér svo út að skokka i kjarna með gamla og það var svona líka gaman!
er að spá í að reyna að vera dugleg fram að rhodos maður verður víst að komast í bikiní!
annars ætla ég að reyna að laga eitthvað til áður en ég fer að sofa svo ég er hætt í bili, þið megið alveg endilega segja eitthvað skemmtilegt til að koma mér í gegnum þessa 8 vinnudaga sem eru framundan!

gott ráð!
-hulda rún
3 ummæli:
Ég er hingað komin til að dreifa orðinu sem ég vona samt að þú sért búin að heyra. Það þarf að borga útskriftarferðina fyrir 17. júlí nk. og punktapeningur á að vera kominn á alla reikninga núna, ef ekki þá er einhver bilun í gangi hjá Landsbankanum.
elsku hulda
þú bloggar -> ég brosi
hey eg kem heim a sunnudaginn! jee
Skrifa ummæli