já halló! aldrei nenni ég að skrifa hérna nema núna en það er líka bara afþví að ég á að vera að lesa njálu. og já þá nenni ég að gera svona flest annað verður að segjast! annars er fátt í fréttum ég er lítið búin ða vera að gera nema mótmæla! ég er alveg hörkumótmælandi verð ég að segja! labbaði niðrí bæ! já labbaði takið eftir! stóð þarna í nístínskulda! borðaði ekki pylsu og labbaði aftur uppí skóla sem var hægara sagt en gert þar sem að það var svo mikill vindur að ég fór 2 skref áfram og 1 afturábak! svo mætti ég ekki meira í skólann fyrren 10 í morgun! efast um að þetta hafi haft mikil áhrif á þorgerði en við gerðum þó eitthvað!
annars er líf mitt frekar mikið bara vinna-læra-vinna-læra-vinna-mótmæla-vinna-læra... endalaust stuð as you can see!;) góð í enskunni!
en já það er allt að klikka þessa dagana ég fór í gær og keypti eða já mamma keypti svona þráðlaust dæmi svo að ég geti horft á stövarnar sem eru frammi og vídjó inní mínu herbergi er komin með leið á að vera bara með DVD þetta á víst að vera voða flott eitthvað engar snúrur og betri virkni og eitthvað má líka vera það kostaði litlar tíu þúsund krónur!svo við spurðum hvort að það væri nokkuð flókið að koma þessu sama og kallinn bara neinei ekkert mál það eru svo góðar leiðbeiningar svo þegar ég kom heim úr vinnunni í gær og ætlaði að fara að tengja þetta kemur babb í bátinn kallskrattinn var ekkert að minnast á það að þessar frábæru leiðbeiningar væru á þýsku og ekki með myndum! já einsog margir vita er þýska ekki mitt sterkasta fag svo ég skil ekki boffs! ohhh þetta er meira rugglið!
en já þetta er orðið ansi langt blogg... samt eitt það er rosalega erfitt að sakna einhvers! það er bara vont á tíðum ég fæ bara verk í magann og hálsinn og vinstri hendina! æjji þetta er fúlt!
annars er ég hætt í bili lifið heil heiglar!
hulda rún mótmælandi!
vond mynd-góðir tímar!
6 ummæli:
hahhahahhahahhaaha á þýsku af öllum tungumálum :)
fyndin mynd og já góóóðir tímar!
voðalega er eitthvað erfitt hjá þér greyið mitt:/ EN btw, þessi mynd hérna í færslunni fyrir neðan er óbjóður...
Ég er að commenta mörgum klukkutímum eftir að ég las færsluna þannig að ég ætla að kommenta úr samhengi (ég kommenta alltaf í samhengi[VÍST!]).
haha bíddu thetta er saet mynd;) allavega gódir tímar! thad er á hreinu =)
hey þú ógisslega töff! ójá ekkert smá!
Skrifa ummæli