föstudagur, júní 30, 2006

laga til-hlakka til

já nú er klukkan 4 mínútur í 5 og ég sit og blogga bráðum fara stelpurnar að vakna í vinnuna hver veit nema ég verði ennþá að blogga?
en já þar sem að ég er alltaf að vinna kvöldvaktir eiginlega er ég gjörsamlega búin að snúa sólarhringnum við! vaki alltar nætur alveg fram undir morgun og sef svo til svona 1 eða 2 jafnvel fæ mér eitthvað að borða horfi á sjónvarpið og fer svo í vinnuna, þvílíkt stuð líf!
en þegar ég kom heim úr vinnunni í kvöld ákvað ég að vera dugleg fyrst að ég gat ekki sofið og tók til í húsinu! þá meina ég taka til taka úr vélinni setja í vélina moppa, skúra, þurka af, hengja út, setja í þvottavél+hanþvo helling! já svona get ég verið dugleg, svo lýtur líka allt útfyrir að ég þurfi að slá lóðina á morgun:/
en annars ætla ég að enda þetta skemmtilega blogg á smá tilhlökkunar lista!
-mamma og pabbi eru að koma heim
-anna er að koma heim
-hitta alla
-spjalla
-slúðra
-hlægja
-grilla
-gráta(af gleði þegar ég hitti önnu)
-hafa einhvern til að tala við heima
-þurfa ekki að gera allt sjálf
-fá gjafir:)
-fá frí 4,5 og 6
-hanga á bláu könnunni hjá önnu
-fara til spánar:)
-fá sísí aftur heim
-vera öll fjölskyldan á akureyri í vetur
-vinna í vandamálum
-vera glöð
já þetta er nóg í bili ég held ég reyni að sofna!
-hulda rún

bara 4 dagar þangað til ég hitti þetta beib!

fimmtudagur, júní 22, 2006

myndavesen

já ég er alltaf jafn óheppin með þessar blessuðu myndasíður en mér tókst að koma nokkrum myndum á netið svo hér koma nokkrar frá því skemmtilega kvöldi sem ég lýsti í síðasta bloggi;) vantar samt helling af myndum þetta eru bara nokkrar frá byrjun kvöldsins en þessi myndasíða vill ekki leyfa mér að setja inn fleiri myndir! en þetta er allavega eitthvað:)


sara gangster

omglol

the chicken dance

harpa í trylltum dansi

ójá

linda og bjartmar kíktu í heimsókn

alveg að missa sig í gleðinni

aðeins of spennt

babeh

kreisí systur

vafasamar

tal-andi

sætu flón

svalar

svalari

svalastar!

frekar sjúskuð

gleðipinnar

hey þú!

glaða harpa

björg í bíl

hress björg í bíl!

já ég set inn meira þegar myndasíðan leyfir;)
-hulda rún

sunnudagur, júní 18, 2006

girls just wanna have fun

helgin já? ég veit ekki hvað segja skal vann 12 tíma á 17. júní og ég héllt ég myndi láta lífið! ekki drekka og skera þig á glerbrotum daginn fyrir 12 tíma vakt á stórhátíðardegi!
já ég er mjög miskilin manneskja! atvik helgarinnar var án efa þegar ég og gulli læstum okkur inni á kvennaklósetti til að taka glerbrot úr löpinni á mér og fólk miskildi það svona rosalega! þannig já ef þú hélst eitt þá já nú veistu annað.... góð hulda!
um helgina var ég auli á föstudegi og fékk að heyra það á laugardegi það er ávallt gaman
á morgun er ég í fríi og mamma og pabbi ætla að yfirgefa mig svo hver veit nema ég finni mér tíma og hendi inn myndum!
-hulda

föstudagur, júní 16, 2006

mánudagur, júní 12, 2006

i'm in love with your brother....

já góðann daginn!
í dag tók ég ákvörðun... veit ekki alveg hvað mér finnst um hana ennþá en maður verður víst að taka stórar ákvarðanir annað slagið...
lífið fer ekki alltaf einsog maður bjóst við og stundum klikkar formúlan! það þarf ekki að vanta nema eitt hráefni og þá er uppkriftin ónýt! heilu tímarnir af bakstri til einskyns...
en svona er lífið einsog veðrið kemur sífellt á óvart! stundum á góðann hátt og stundum tjaa... ekki alveg jafn góðan!
annars er ég farin að kveðja vin!
-hulda rún

þriðjudagur, júní 06, 2006

killer in the dark

mér líður einsog ég sé í rússneskri spennumynd þar sem að ég er í kapp við tímann hver mínúta sem líður þýðir styttra í prófið og minni tími til að sökkva i sig þekkingu tiktak tiktak það styttist í dauðadóm stress og kulda of hraðann andadrátt og skjálfta! tennurnar glamra í takt við kaffiglasið og orkudrykkir fljóta um allt, og tíminn styttist!
framhald síðar
-hulda rún

sunnudagur, júní 04, 2006

how to love, don't ask me....

-orkudykkir
-kaffi
-tónlist
-lesa
-glósa
-sofa
-dalvík
-ís
-grey's anatomy
-sitja á klöppum
-stress
-andvaka
-keyra
-hlægja
-gleyma
-mygla
-leiðast
-tengja skartengi
-brokeback mountain
-dreyma
-syngja
-hulda rún stefánsdóttir

fimmtudagur, maí 25, 2006

miðvikudagur, maí 24, 2006

MYNDIR MYNDIR

já gleðitímar gott fólk! er loksins komin með góða aðferð til að setja myndir á netið svo þetta fer allt að koma það eru komnar nokkrar hðer er linkurinn
http://www.blog.central.is/fridafraenka/index.php?page=viewPage&id=842928
jejjj pulsa og kók!
-hulda run

þriðjudagur, maí 23, 2006

praófleiði!

já einsog spáð var getur maður ekki annað en bloggað í prófunum! allt til að halda manni frá bókunum! og þar sem mér leiðist extra mikið ákvað ég að dunda mér við þetta!

Núverandi föt : náttbuxur varmasokkar lowe alpine peysa og flíspeysa og er samt kallt takið eftir!
Núverandi lykt: flower by kenzo
Núverandi farði: afarlítill þar sem ég er búin að nudda úr mér augun
Núverandi áform fyrir helgina/kveldið: læra læra og læra
Núverandi hatur: þýska og veðrið
Núverandi ósk: Að ganga vel í prófunum
Núverandi hár: hrikalegt
Núverandi dót í vösum: ekkert í náttbuxunum
Núverandi pirringur: var búin að segtja milljón myndir inná síðuna og skrifa undir þær og alles og þær hurfu!
Núverandi aðhlátursefni: kallinn sem sandra blikkaði svo mikið að hann stoppaði til að tala við okkur í dag;) smá mislkilningur!
Núverandi tónlist: you take my breath away-the knife
Núverandi bók: skólabækur og ævisaga bítalana
Núverandi uppáhaldsleikari:
Núverandi uppáhaldsleikkona: Kirsten Dunst
Núverandi skartgripir: engir búin að rífa þá af mér
Núverandi löngun: svefn, sumarfrí og fá önnu heim!
Núverandi áhyggja: próf
Núverandi mynd:
Núverandi texti á heilanum: keep fallin'-hot chip
Núverandi desktop pic: mynd af stelpunum að hoppa á trampólíni
Núverandi eftirsjá: úff... að vera ekki að læra
Núverandi skemmtun: tónlist bara
Núverandi vonbrigði: geta ekki farið að sofa!
Núverandi blótyrði: bara allur pakkinn
Núverandi staður: Tölvuherbergið.
Núverandi hljómsveit: the knife og hot chip, í dag....
Núverandi söngvari: jeff buckley
Núverandi söngkona: alanis morrisette
Núverandi land: Ísland best í heimi
Núverandi e-mail: sama og vanalega bara
Núverandi hlutir á veggnum: ekkert hérna inni
Núverandi uppáhaldþættir: Lost, Desperate Housawifes, O.C. og One Tree Hill.
Núverandi litur: brúnn
Núverandi hlutur til að hlakka til: prófalok!
Núverandi Msn manneskjur: árni, davíð arnar og arnar
Núverandi manneskja til að forðast: hah vissir aðilar bara
Núverandi vinir: ottó
Núverandi sársauki: mígreni!

vá hvað þetta var já.. gaman!
en nú er ég farin að læra en það koma bráðum fullt fullt af myndum jejjj:)
-hulda rún

mánudagur, maí 15, 2006

yes sir i can boogie, boogie, boogie all night long...

já ég er svona að spá í að hætta með þessa yndislegu síðu...
arfalélegur bloggari...
en hver veit kannski gefst ég upp og sný aftur í prófunum?
-hulda rún

þriðjudagur, maí 09, 2006

viðvörun!

viljirðu fá góða þjónustu þá skaltu ekki! ég endurtek ekki! versla við bræðurnar ormson! þetta er án efa lélagasta þjónusta sem að ég hef á ævi minni fengið!
ég vona að sem flestir lesi þetta þar sem að ég gæti ekki verið meira pirruð! og ég vona að enginn muni versla þarna framvegis! þetta er virkilega ótrúlegt að einhver skuli koma fram við kúnna sína á þennan hátt og vera ekki farið á hausinn! aldrei hefði mér einusinni dottið í hug að þetta væri mögulegt! ég er orðlaus!
ég keypti mér spilara í radionaust síðasta sumar og ég held að hann hafi samfleytt virkað í svona 3 mánuði! hann er búin að vera í viðgerð núna frá því í byrjun febrúar minnir mig og það er í annað skipti sem ég fer með hann! en já frá því í febrúar er hann búinn að týnast og það er greinilega engum að kenna! það er búið að týna snúrunni til að setja tónlist inná hann! það er búið að úrskurða hann ónýtann! það er búið að segja við mig miljón sinnum afsakaðu geturu komið aftur á morgun það er búið að segja milljón sinnum! já við hringjum í þig á morgun! og já aldrei hef e´g heyrt frá þeim!
radionaust-þar sem viðskipti snúast um traust HAH en kaldhæðnislegt!
hulda rún bitra!

hláturinn lengir lífið!

í kvöld lengdist líf mitt um ábyggilega 20 ár! ég hló svo mikið að ég var komin með ekka, ógleði, hitakast, maskarinn var komin niður á axlir og ég var komin með doða í tærnar!
það var margt fyndið en það eru 3 atriði sem standa uppúr!
H:ég er alveg ofvirk í að leiðrétta fólk í stafsetningu!
S:huldaaa..
H:sagðiru stebbi in the name of love
S:haha nei!
R:jóla hvað R=róninn!
já þú hlærð ekki því þú skilur ekki! ó fáfróða sál!
hulda rún ekki svo fáfróð?

miðvikudagur, maí 03, 2006

í dag...

-vaknaði ég 08:02
-var ég mætt í skólann klukkan 08:14
-var ég því útlýtandi einsog heimilislaus rotta!
-var ég í skólanum frá 08:14-22:02
-kláruðum við 2 verkefni
-íhugaði ég að leggjast í dvala
-gerði ég mig að fífli!
-gerði margrét skandal
-fékk ég ekki spilarann sem mér var lofað í gær
-er miðvikudagur
-er vikan hálfnuð
-lá ég í gólfinu í tölvustofunni
-söng ég ljúfa anna einsog ég ætti lífið að leysa
-gekk mér illa í þýskurófi!
-fór ég í nettó og bónus sama dag héllt það kæmi aldrei til þess!
-munaði minnstu að ég léti lífið úr ofnæmi!
-borðaði ég pítu
-pantaði ég mér tíma í plokkun og litun!

í dag
-last þú þetta frábæra blogg!

góða nótt!
-hulda rún

þriðjudagur, maí 02, 2006

the drugs don't work...

í dag er án efa versti dagur sem ég hef átt í langann tíma! þó var eitt gott valla stæ var veik svo ég slapp við einn tíma í dag!
en svo ég lýsi þessum líka frábæra degi.. þá byrjaði hann á einu stykki mígreniskasti svo ég mætti seint um síðir í skólann... þar tók við félagsfræði með pirruðum þorláki...
en já það er bara einfaldlega ekkert og þá meina eg ekkert að ganga upp! og til að bæta gráu afaná svart er ég að reyna að læra í þýsku! ef það er eitthvað sem ég hata þá er það þýska!
en já spurning um að hætta að væla hér og fara að læra?

já svona var gaman um hlegina...
men ich skal lære þýsk?
hulda rún!

sunnudagur, apríl 30, 2006

fotíðarþrá!

ef þú ert ekki í grúbbunni verður þessi lesning ekkert spes!

ég er full af fortíðarþrá! ég las blogg á miffi og hreinlega táraðist! því að það er satt í gamla daga var allt svo gott! og jafnvel þó að maður hafi innilega hatað lundarskóla og verið án efa svolítið bældar þá var það í lagi því að við vorum 6 bældar saman
já það er ekki laust við það að það hafi verið gaman!
en í dag eru allir svo uppteknir ef þeir eru ekki í brasilíu eru þeir að læra eða komin með kærasta sem er náttúrulega bara rugl!;)
í mínum huga er reyndar allt í gamla daga mér finnst 1.bekkur vera gamla daga...?




í mínum huga er þetta allt í gamla daga, ég held að ég telji allt áður en að anna guðrún fór vera í gamla daga sem er undarlegt þar sem að það eru hvað 9 mánuðir síðan kjélla fór? en það er 9 mánuðum of mikið!

góðir tímar!

lífið var ljúft:)

vaglaskógur var tekinn með trompi!

myndir segja meira en 1000 orð!








HAHAHAHA!

hvað getur maður sagt? ég vil endurvekja grúbbukvöld þar sem var hlegið þangað til að maður var bókstaflega komin með strengi í magann og maskara niðurá kinnar! (nema hvað við vissum ekki hvað máling var;))
þar sem að ein varð pirruð og hinar gerðu í því að vera pirrandi;) þar sem að skapsveiflur voru svo miklar að það var hlegið, grátið, rifist og sæst á innan við klukkutíma!;)
en já ég bara verð að koma með nokkur gullkorn man reyndar frekar lítið núna...
- ,, já það var ég" uuu... nei hulda það var ég!
-,,betra er að sofa í mylsnu en verkjum"
-hey anna viltu koma með mér á klóstið? NEI!
-,,ég heiti siggi og ég er fyllibytta" ,,ég heiti líka siggi og ég er líka fyllibytta" ,,ég heiti líka siggi og er líka fyllibytta" ,, við erum siggarnir þrír og við erum fyllibyttur"
- ,, hún sagði polli litli,,
-ég vildi að ég væri köttur því að þá gæti ég sofið þar sem ég vildi
-bíddu ha hver? bíddu hver er það? jaaaá nei ég veit ekki hver það er*1000
-herðu þú átt kjöt hérna hjá mér í frykistunni
-er erlingur að redda mínum málum?
æi ég nenni ekki að hugsa meira en já stelpur mínar nú þurfum við að fara að gera eitthvað í okkar málum og endurvekja gamla tíma!
hittumst heilar
hulda run með fortíðarþrá!

þriðjudagur, apríl 25, 2006

Another coffee it’s on the house...

einsog sumir dagar eru fullkomnir eru aðrir það svo innilega ekki...
það eru sumir dagar sem byrja hreinlega illa!
maður fer frammúr rúmminu stígur á uppáhaldshárskrutið sitt brýtur það og meiðir sig í þokkabót. það seinasta sem manni langar í er morgunmatur svo maður drekkur eitt vatnsglas og tekst að hella helmingnum yfir sig.
maður leggur aðeins of seint af stað í skólann og þarf því að pirra sig óhugnalega mikið yfir umferðinni og lendir auðvitað á eftir gröfu,vörubíl eða jafnvel gömlu fólki! svo loksins þegar maður kemst á áfnagastað tekur það 10 mínútur að finna stæði og endar maður á því að leggja svo langt frá að maður hefði liggurvið getað sleppt því að fara á bíl! sem verður til þess að maður kemur aðeis of seint í fyrsta tíma og fær þar af leiðandi ekki mætingu! maður uppgvötar svo auðvitað til að fullkomna þetta að maður gleymdi spilaranum svo það er engin björgun maður hreinlega neyðist til að hlusta á kennarann tala um hvenar tíminn hafi byrjað!
ég fór því aðeins að pæla getur það verið að það ráðist allt af byrjun dagsins hvernig dagurinn er?
því ég hef tekið eftir því að þegar dagurinn byrjar ömurlega þá virðist allt svo ömurlegt maður æsir sig yfir öllu og allt er já ómögulegt en ef að dagurinn hinsvegar byrjar vel er viðmótið gagnvart hlutunum svo allt öðruvísi þá er svona "æi þetta reddast,, viðmót og já þá er allt miklu betra!
þetta held ég að sé ástæðan fyrir því að sumir dagar eru hreinlega fullkomir á meðan aðrir ery hörmung!
vá þetta var leiðinlegt blogg og sýnir vel hvor dagurinn var hjá mér í dag?
hulda rún sókrates

miðvikudagur, apríl 19, 2006

just a perfect day...

já þessi dagur er ekki búinn að vera af verri endanum!
þurfti bara að fara í 4 tíma í skólanum:) fékk loksins afmælisgjöfina frá aönnu guðrúnu og var ekki lítið ánægð fékk reyndar eins peysu og ég á nema í öðrum lit já sýnir hversu vel hún þekkir smekkinn minn;) en svo fékk ég fullt af skatrgripum líka:)
svo var anna haff að koma prá paris og gaf mér eitt stykki pils sem ég er mjög ánægð með:)
svo fann ég vouge blað sem ég héllt að ég væri búin að tína! bara endalaus gleði:)
en já annars er fátt í fréttum... bara same old same old ha?

svo ætla mamas and the papas að skella sér suður á morgun svo ég og sísí verðum bara einar í kotinu:) það reddast þar sem árni elskan ætlar að lána mér kaggann sinn svo ég verði nú ekki bíllaus;) hah

en já ég er farin að leggja mig áður en ég fer í ræktina!

hittumst heil
hulda rún stefánsdóttir (hr(es)s)

sunnudagur, apríl 16, 2006

drekka eða ekki að drekka það er spurningin?

já hér kemur hina algenga setning og nú meina ég hana meira en nokkru sinni fyrr!
ég ætla aldrei að drekka aftur
hulda rún ekki svo ofurhress!

þriðjudagur, apríl 11, 2006

páska háski

þetta páskafrí legst ekki vel í mig mér virkilega leiðist er farin að íhuga að hengja mig í rúllugardínum!
mamma og pabbi eru búin að vera svo lengi í búðinni að ég er farin að halda að þau hafi flúið land búi nú einhversstaðar á suðurskautslandinu laus við mig! fæ líklegast póstkort eftir nokkrar vikur sem minnir mig á að borða og fara í skólann!
annars var menningarferðin ágæt og gettu betur hefði ekki getað verið betra!
ég ákvað í gær að nota páskafríið í að reyna að átta mig á þessu myspace dæmi en nú er ég að fara yfirum og að því komin að gefast upp! nema auðvitað það vitji mín engill...
einnig ákvað ég að búa til nýja myndasíðu ákvað að prófa myphotoalbum.com og fékk þá að vita að ég átti þegar síðu þar og nokkrar myndir og hugsaði með mér afhverju ætli ég hafi nú hætt að nota þetta? svo ég eyddi dágóðum tíma í að læra á þetta og hennti inn slatta af myndum alveg svo ákvað ég nú að setja þær á aðra síðu þar sem ég myndi skrifa undir skemmtileg komment og sýna fyndni mína og já þá mundi ég alltieinu afhverju ég hafði hætt að nota þessa síðu! það var ekki hægt að setja þær á aðra síðu! seinast eyddi ég bara svona klukkutíma í að skrifa langt og skemmtilegt myndablogg og já svo komu myndirnar ekki mér til ó svo miklillar ánægju! já það eru ekki margir sem láta gabbast tvisvar af sömu síðunni en jú auðvitað er ég ein af þeim!
en já ég ætla að hætta þessu blaðri og fara að reyna að læra á myspace eða hengja mig í rúllugardínunni veit ekki hvort er verra!?
hulda rún ekki svo mikill páskáhéri!